Vegan hakk og spaghetti
/Í dag deilum við með ykkur uppskrift að dásamlega góðu vegan hakki og spaghetti. Þetta er hinn fullkomni hversdagsmatur að okkar mati þar sem það tekur enga stund að útbúa hann og það er auðvelt að útbúa stóran skammt og eiga í afgang.
Uppskriftin er gerð í samstarfi við Anamma og við notuðum hakkið frá þeim í hana. Við erum alltaf jafn glaðar að fá að vinna með Anamma því við elskum vörurnar frá þeim og notum þær mikið í okkar matargerð.
Hakk og spagettí er klassískur heimilsmatur og ætli það séu ekki öll heimili með sína uppáhalds uppskrift sem alltaf er fylgt. Hakk og spagettí er einnig réttur sem er fullkominn réttur til að bjóða fólki upp á sem er svolítið efins með kjötlausa lífsstílinn. Ég hef boðið fólki upp á það sem fattaði alls ekki að um væri að ræða vegan hakk.
Okkur finnst virkilega gott að hafa rjómaost og smá pestó í sósunni. Það gerir hana svo rjómakennda og góða. Við mælum virkilega með því að prófa. Ólífur eru einnig algjört möst að okkar mati, en við vitum vel að það eru skiptar skoðanir á því, svo við skiljum vel ef þið veljið að sleppa þeim hehe. Það tekur enga stund að skella í þessa bragðgóðu og mettandi hakksósu.
Við toppum svo yfirleitt með vegan parmesanosti eða heimagerðum kasjúhnetuparmesan. Uppskrift af honum finnurðu hér að neðan.
Ertu að leita að fleiri góðum pastaréttum? Prófaðu þá:
Ofnbakað gnocchi bolognese
Vegan rjómalagað sítrónupasta
Ofnbakaður pastaréttur með kúrbít, pestó og rjómaosti
Takk innilega fyrir að lesa og við vonum að þér líki uppskriftin
-Veganistur
Gómsætt vegan hakk og spaghetti
Fyrir: 4
Undirbúningstími: 5 MinEldunartími: 15 Min: 20 Min
Dásamlega gott vegan hakk og spaghetti. Þetta er hinn fullkomni hversdagsmatur að okkar mati þar sem það tekur enga stund að útbúa hann og það er auðvelt að útbúa stóran skammt og eiga í afgang.
Hráefni:
Vegan hakk og spaghetti
- 2 msk ólífuolía
- 1/2 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 1 msk oregano
- 1 msk þurrkuð basilíka
- 1/2 msk salt
- 1 pakki anamma hakk
- 400 ml tomat passata (maukaðir tómatar)
- 1 lítil dós tómatpúrra
- 1 kúfull msk rautt vegan pestó
- 150 gr vegan rjómaostur
- 1 grænmetisteningur
- 350 gr ósoðið spaghetti
Heimagerður parmesan toppur
- 1 dl kasjúhnetur
- 2 msk næringarger
- 2 tsk salt
- 1 tsk laukduft
Aðferð:
Vegan hakk og spagettí
- Byrjið á því að sjóða pastað eftir leiðbeiningum á pakkningunum.
- Saxið niður laukinn og pressið hvítlaukinn.
- Hitið olíuna í smá stund á pönnu og mýkið síðan laukinn. Bætið kryddunum og hakkinu saman við og steikið þar til hakkið er nánast tilbúið.
- Bætið restinni af hráefnunum út í og hrærið vel svo rjómaosturinn blandist vel saman við. Sjóðið kjötsósuna í sirka 5 mínútur.
- Berið fram með baguette brauði og parmesan toppinum
Heimagerður parmesan toppur
- Setjið öll hráefnin í blandara eða matvinnsluvél og malið saman.
-Uppskriftin er unnin í samstarfi við Anamma á Íslandi-