Kjúklingabaunasalat með vorlauk og vínberjum
/Í dag ætla ég að deila með ykkur uppskrift af ótrúlega gómsætu kjúklingabaunasalati. Við erum nú þegar með eina uppskrift af slíku salati hérna á blogginu sem heitir “betra en túnfisksalat” og er alveg ótrúlega gott en það sem ég elska við kjúklingabaunasalöt er hvað er hægt að gera þau á marga vegu. Þetta er eitthvað það þægilegasta sem hægt er að gera þegar von er á heimsókn og slær alltaf rækilega í gegn hjá mér.
Í þetta skipti er salatið í samstarfi við Oddpods en það er baunir sem koma tilbúnar til neyslu beint úr pakningunum. Þær koma þó ekki í niðursuðudósum líkt og baunir gera venjulega og þar af leiðandi ekki í neinum vökva, það gerir það að verkum að þær halda næringarefnum betur. Salatið inniheldur rauða papríku, vorlauk og rauð vínber og er það alveg svo ferskt og gott!
Á Instagram hjá okkur má einnig finna “REELS” myndband þar sem sést hversu auðvelt er að útbúa salatið.
Hráefni:
1 pakki kjúklingabaunir frá oddpodds
1/2 dl niðursöxuð rauð paprika
1/2 dl niðursaxaður vorlaukur
u.þ.b. 1 dl niðurskorin rauð vínber
1/2 tsk paprikuduft
1/2 tsk laukduft
2 kúfullar msk vegan majónes
1 kúfull msk vegan sýrður rjómi (má líka setja 1 msk í viðbót af majónesi í staðin)
salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
Byrjið á því að stappa kjúklingabaunir gróft niður með kartfölurstappara eða gaffli.
Saxið niður grænmetið og vínberin.
Hrærið saman majónesið og sýrða rjómanum.
Blandið öllu saman í skál og smakkið til með salti og pipar
-Njótið vel og endilega kíkið á REELS myndböndin okkar á Instagram :D
- Þessi færsla er unnin í samstarfi við Oddpods á Íslandi -