Panang karrý ramen með Oumph

Fullkomið haustlegt ramen

Í dag deilum við með ykkur uppskrift af æðislegri einfaldri núðlusúpu eða svokölluðu “ramen”. Súpan er gerð á einni pönnu og tekur innan við 15 mínútur að elda. Það er auðvelt að nýta það sem til er út í súpuna, hvaða grænmeti sem hugurinn girnist en að þessu sinni settum við sveppi, edamame og oumph”.

Panang ramen með Oumph!

Panang ramen með Oumph!
Fyrir: 2
Höfundur: Veganistur
Undirbúningstími: 5 MinEldunartími: 10 Min: 15 Min
Æðislegt einfalt ramen með panang karrý, sveppum, edamame og oumph!

Hráefni:

Aðferð:

  1. Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakkningum
  2. Hitið olíu á pönnu og setjið pressaðan hvítlauk, rifið engifer og panang curry maukið út á pönnuna. Steikið aðeins og bætið síðan við sveppum, edamame og oumphi. Steikið í 5-6 mínútur.
  3. Bætið kókosmjólk, vatni, grænmetiskrafti, soyasósu og miso út á pönnuna og leyfið suðunni að koma upp. Leysið upp miso og grænmetiskraft og smakkið til með salt og pipar. Sjóðið í 5-6 mínútur.
  4. Skiptið núðlunum í tvær skálar og skiptið síðan soðinu, sveppunum, oumphi og edamame baunum í skálarnir.
  5. Stráið niðursneiddum vorlauk, kóríander, sesamfræjum og chilli olíu yfir og berið fram.
Prufaðir þú þessa uppskrift?
Taggaðu @veganistur.is á instagram og notaðu hashtaggið #veganistur

- Þessi færsla er unnin í samstarfi við Oumph! á Íslandi -